Dómsmálagjöld við meðferð einkamála fyrir Landsrétti:
1. Gjald fyrir kæru er 70.000 kr. og greiðist héraðsdómstól.
2. Gjald fyrir áfrýjunarleyfi er 70.000 kr.
3. Gjald fyrir áfrýjunarstefnu er:
34.000 kr. þegar áfrýjunarfjárhæð er allt að 3.000.000 kr.
70.000 kr. þegar áfrýjunarfjárhæð er 3.000.000–30.000.000 kr. og
þegar krafist er viðurkenningar á réttindum og/eða skyldum.
176.000 kr. þegar áfrýjunarfjárhæð er 30.000.000–90.000.000 kr.
269.000 kr. þegar áfrýjunarfjárhæð er 90.000.000–150.000.000 kr.
404.000 kr. þegar áfrýjunarfjárhæð er 150.000.000 kr. eða hærri.
4. Gjald fyrir þingfestingu er 34.000 kr.
5. Fyrir endurrit og ljósrit á hverja síðu er 300 kr.
Gjöld greiðast ekki í eftirfarandi málum:
1. Málum til innheimtu vinnulauna.
2. Barnsfaðernismálum.
3. Málum til vefengingar á faðerni barns.
4. Lögræðissviptingarmálum.
5. Kjörskrármálum.
6. Einkarefsimálum.
7. Gjafsóknarmálum að því leyti sem gjald yrði lagt á gjafsóknarhafa.
8. Forsjármálum.
9. Afhendingarmálum sbr. lög nr. 160/1995.
(Lög um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl.)