Viðmiðunarreglur Landsréttar um

fjarverutilkynningar málflytjenda og röðun mála á dagskrá
______________

1. gr.

Málflytjendur skulu vera reiðubúnir til aðalmeðferðar á þeim tíma sem Landsréttur hefur ákveðið þegar mál er komið á dagskrá réttarins. 

2. gr.

Verði ekki hjá því komist er málflytjendum heimilt að tilkynna Landsrétti um fjarveru á nánar tilteknum dögum á tímabilinu janúar til júní annars vegar og september til desember hins vegar. Slíkar tilkynningar mega að hámarki taka til sjö virkra daga á hvoru tímabili.

Tilkynna þarf um fjarveru í samræmi við 1. mgr. eigi síðar en 1. júní ár hvert fyrir tímabilið september til desember og 1. nóvember fyrir tímabilið janúar til júní.

Hafi málflytjandi ekki tilkynnt um fjarveru í samræmi við framangreint verður tímasetning aðalmeðferðar ekki breytt vegna fjarveru málflytjenda eftir að frestur samkvæmt 2. mgr. rennur út nema um sé að ræða skyndileg lögmæt forföll í skilningi réttarfarslaga.

3. gr.

Aðalmeðferð sem boðað hefur verið til í Hæstarétti gengur framar aðalmeðferð í Landsrétti og aðalmeðferð í Landsrétti gengur framar aðalmeðferð sem boðuð hefur verið í héraði.

4. gr.

Við röðun mála á dagskrá Landsréttar er ekki tekið tillit til aukastarfa málflytjenda, þ.m.t. nefndarstarfa og kennslu, nema tilkynnt hafi verið um fjarveru tengda þeim í samræmi við 1. mgr. 2. gr. og tilkynningin rúmist innan þess dagafjölda sem þar greinir.

5. gr.

Forðast skal að raða málum á dagskrá Landsréttar þannig að málflytjandi sé í aðalmeðferð tvo daga í röð eða fleiri.

6. gr.

Í eftirfarandi málum þar sem hraða ber meðferð máls er ekki tekið tillit til fjarverutilkynninga málflytjenda samkvæmt 1. mgr. 2. gr.:

  • Málum þar sem sakborningar sitja í gæsluvarðhaldi eða sæta farbanni.
  • Forsjármálum og forsjársviptingarmálum.
  • Einkamálum sem sæta flýtimeðferð skv. XIX. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

7. gr.

Tilkynning málflytjenda í samræmi við 1. mgr. 2. gr. lýtur eingöngu að tímasetningu aðalmeðferðar en hefur engin áhrif á fresti sem Landsréttur veitir samkvæmt lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála og lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála, þ.m.t. til greinargerðarskila.

Kópavogi, 28. maí 2025

Erna S. Sigurðardóttir,
skrifstofustjóri.